Þessi síða er í vinnslu. Hún er komin til af því að ungur sonur minn komst í handskrifaðu uppskriftabókina mína um daginn og reif hana alla í hengla.

Auðvitað hefði ég bara getað skrifað allar rifnu síðurnar upp aftur en það er miklu skemmtilegra að setja upp vefsíður. Auk þess sem það eru alltaf einhverjir að hringja í mig til að fá uppskriftir að hinu og þessu þannig að ég ákvað að setja þetta bara á vefinn í staðinn.

Nýjustu uppskriftirnar

Hátíðaís

4 eggjarauður
4 msk sykur
1 msk vanillusykur
1/2 ltr rjómi
50 gr Toblerone súkkulaði
50 gr heslihnetur (má sleppa)

1. Stífþeyta saman eggjarauður og sykur og bæta svo vanillusykri saman við.

2. Stífþeyta rjómann ogh blanda honum varlega við eggjahræruna

3. Saxa súkkulaði (og hnetur ef eru) og setja í blönduna

4. Hella blöndunni í 1 líters form og frysta í sólarhring.

5. Taka þarf ísinn tímanlega úr frysti. Losa ísinn úr forminu þannig: Dýfa forminu augnablik í heitt vatn og hvolfa úr forminu á disk eða fat. Gott að leyfa ísnum að þiðna í 5-10 mín áður en borið er fram.

Mikið ofboðslega góður ís!
Reyndist vera algerlega laus við nálar, og ekki eins stífur og venja er til með heimalagaðan ís.

Kærar þakkir til frúarinnar á barnalandi sem sendi þessa uppskrift.

12:24 FH

Gúllas

600 gr. nautagúllas
1 laukur
1 paprika
2 gulrætur
ca 250 gr. sveppir

Laukur, paprika, gulrætur og sveppir saxað og hent á pönnu eða í pott til steikingar.
Gúllasið fer í pottinn og skömmu síðar allt hitt.
Mallað eins lengi og maður vill, vatni gusað yfir eftir þörfum.
Síðan er soðinu breytt í sósu með þykkingu og kryddun eftir hvers manns smekk.

Ef vel tekst til verður úr þessu úrvals fangelsiskássa sem allir slafra með bestu lyst.
Gott er að skella rjóma í sósuna til hátíðarbrigða, sósan verður mun þéttari og betri þannig.

5:55 EH

Piparkökur II

500 gr hveiti
250 gr smjörlíki
250 gr sykur
1 stk egg
3 stórar matsk sýróp
3 tsk natron
2 tsk kanill
2 tsk negull
1/2 tsk pipar

- Allt hnoðað samam og mótaðar litlar kúlur.

6:08 EH

Amerískar súkkulaðibitakökur III

2,5 bollar hveiti
1 tesk. matarsódi
1. tesk salt
1 bolli smjör/smjölíki (við stofuhita, er c.a 250 gr.)
3/4 bollar sykur
3/4 bollar púðursykur
1 tesk vanilludropar
2 egg
2 bollar súkkulaðibitar, best að nota eitthvað ekta súkkulaði...
1 bolli heslihnetur eða aðrar hnetur (má sleppa)

- Smjör/smjöríki, púðursykri, sykri og vanilludropum hrært saman.
- Síðan er eggjunum bætt útí einu í einu.
- Þurrefnunum bætt rólega saman við.
- Að lokum er súkkulaið og hnetum (ef vill) bætt útí.
- Sett með teskeið á plötu og bakað við 180 í um 10 mín.

6:15 EH

Súkkulaðibitakökur

200 g smjör
1 bolli púðursykur
2/3 bolli sykur
2 egg
4 tsk vanillusykur
2 1/4 bollar hveiti
1 tsk salt
1/2 tsk lyftiduft
2 bollar saxaðar hnetur
3 bollar grófsaxað suðusúkkulaði

bakað við 190° í u.þ.b. 10 mín

6:13 EH

Smákökur Jólasveinsins

2 og 1/2 dl mjúkt smjör eða smjörlíki
2 dl sykur
2 dl púðursykur
1 egg
5 dl hveiti
1 tsk matarsódi
1/2 tsk salt
2 og 1/2 dl saxaðar hnetur (valhnetur, pekanhnetur eða heslihnetur)
300 gr siríus konsum suðusúkkulaði

- Hitið ofninn í 190°C.
- Þeytið saman smjör, sykur og púðursykur.
- Bætið egginu útí og hrærið vel.
- Bætið hveitinu, matarsódanum og saltinu í deigið og hrærið.
- Setjið hneturnar og súkkulaðið útí og setjið deigið á plötu, sem klædd er með bökunarpappír.
- Notið teskeið til að móta kökurnar og hafið 5 cm. á milli.
- Bakið í 8 - 10 mín.
- Kælið kökurnar á rist og geymið í lokuðu íláti.

6:12 EH

Súkkulaði smákökur

100 gr smjörlíki
100 gr sykur
1 egg
200 gr hveiti
1/2 tsk hjartarsalt
2 msk kakó
1 tsk vanillusykur
25 gr saxaðar rúsínur
25 gr súkkulaði
25 gr saxaðir hnetukjarnar eða möndlur

- Öllu blandað saman og hnoðað saman.
- Rúllað út í lengjur, skorið í sneiðar og sett á bökunarplötu.
- Bakað við vægan hita

1:52 EH