« Kókoskökur | Main | Kryddkaka a la tengdó »

Kúmenkringlur Soffíu

3 dl mjólk
100 gr smörlíki
1 bréf þurrger
2 tsk salt
3 tsk kúmen
8 dl / ca 500 gr hveiti
1 egg til penslunar

- Bræðið smjörlíki og blandið við velgda mjólkina.

- Blandið þurrefnunum saman ásamt með þurrgerinu og vætið í með volgri mjólkurblöndunni.

- Hnoðið saman í gljáandi deig með meira hveiti ef með þarf.

- Látið degið hefast þar til það hefur tvöfaldast að rúmmáli.

- Hnoðið degið niður og hlutið það í 16 til 18 bita og mótið fingurþykkar pylsur og síðan kringlur sem settar eru á bökunarplötu.

- Látið hefast aftur í 15 - 20 mín. undir rökum klút.

- Penslið með lítið eitt þeyttu egginu. Stráið kúmeni yfir ef vill og bakið í miðjum ofni í ca 6 - 10 mínutur við 225 - 250°C, eða þar til kringlurnar eru gullbrúnar að lit.

- Bestar volgar.

2:07 EH

Ummæli

Skrá ummæli




Remember Me?