4 egg
50 gr sykur
50 gr flórsykur
50 gr hveiti
50 gr kartöflumjöl
30 gr kakó
- Eggjarauður og sykur þeytt vel saman.
- Hvíturnar og flórsykurinn þeytt vel saman.
- Hveiti, kartöflumjöli og kakói sáldrað saman og hrært saman við samanblandaðar eggjahrærurnar.
- Smurt út á ofnskúffu og bakað við 190°C í ca 10 mínútur og látin kólna. Gott er að setja rakt viskastykki yfir kökuna á meðan til þess að hún þorni ekki.
Smjörkrem
- 75 gr smjörlíki og 1+1/2 dl flórsykri hrært vel saman.
- 1 eggjarauðu ásamt með 1 tsk af vanillu blandað útí.
- Smyrjið kreminu á kökuna og rúllið henni upp.